Bloggsvæði Sóleyjar
30.03.2006 21:22:59 / solla

Fallegt.........

What you are to me.

Have you ever felt like you knew someone a long, long time ago?
Another place, another time, a friendship of the souls?
Two people who share a bond for reasons neither know,
A feeling that they were friends, a long, long time ago?


Did they stumble onto each other by pure circumstance,
Or was it fate and destiny that played a certain hand?
Two souls intertwined, they are worlds apart,
But the soul, it knows no difference, in matters of the heart.


Somehow they are drawn together, fate has brought them back,
Each living worlds apart, they journey separate paths.
When this life is over, and a new life begins,
Their souls will find each other, two souls that we call friends.


Reminding You I Care


» 3 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 17:07:37 / solla

Commenta.....

Commenta maður/kona..0  og..:

1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggalinginn þinn!


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 23:50:31 / solla

Verð nú að taka þessari áskorun frá Öldu.........

4 störf sem ég hef unnið: 

Vann í fiski á sumrin (virkilega gaman, frábært folk)

Kjöriðnaðarstöðin (Time of my life, og Jónu auðvitað líka ;))

Kjúklingastaðurinn (Í hópi mestu djammara í heimi)

Verkefnastjóri Fasteigna – og lóðarskrár hjá Akureyrarbæ 

4 bíómyndir sem ég get horft á aftur og aftur:

When a man loves a woman (elska þessa mynd )

Pureluck  (Brjálæðislega fyndin)

Notting Hill  (Get alltaf hlegið mig máttlausa þegar ég sé þessa mynd)

Murder in Missisippi ( Ég auðvitað dýrka Matthew McConaughey horfi á allar hans myndir)

 

4 staðir sem ég hef búið á:

Hríseyjargata  ( fyrsti staðurinn)

Bakkahlíð ( já fór úr gettóinu og varð þorpari ;) )

Fjólugata ( fór aftur í gettóið sem betur fer)

Smárahlíð     (fyrsta íbúðin sem við keyptum)

Víkurgil ( fyrsta íbúðin sem við byggðum og ekki sú síðasta)

Valagil 2 (Næsta íbúð sem við byggðum )

Valagil 15 (SÍÐASTA ÍBÚIÐIN SEM VIÐ BYGGJUM) 

4 sjónvarpsþættir sem ég elska að horfa á: 

Greys Anatomy (Æðislegir þættir)

Twenty four ( must )

Boston Legal

IDOL (auðvitað !!) 

4 staðir sem ég hef verið í fríi á:

Benidorm

Kanary   (Sælla minninga urr….)

Dublin  

Laugafell ( Geggjað að fara þangað með Rannveigu og famelí J

4 vefsíður sem ég skoða daglega:

mbl.is

vb.is

Allar bloggsíður vinanna

Espirit.com 

4x bestu matarréttirnir:

Kjúklingabringur í Tandoorísósu

Kjúklingabringur í Ciabatabrauði með fullt af grænmeti

Hamborgarahryggur ala me með epla og vínberjasalati og öllum pakkanum

Fiskur í ofni með hvítlaukskartöflum og grænmeti

4 bloggarar sem ég mæli með:

 Listaspíran Beta

Bloggið mitt auðvitað  (og allra hinna sem eru á síðunni minni )

Carolína fyndnasta kona í veröldinni

Espirit.com og Victoria secret.com  (alltaf gaman að skoða þessar síður) 

4 bækur sem ég hef lesið:

Hef nú lesið afskaplega lítið eftir að ég kláraði skólann (fékk líklega ógeð fyrir því þá)  En þó hef ég lesið

Aðeins eitt barn  (verslaði ekki dót frá Kína í marga mánuði á eftir las á allt sem ég keypti, okí pínu biluð !!!)

Vetrarborgin eftir Arnald Indriða (Ekkert sésrstök)

Leggðu rækt við sjálfan þig  (Er svona uppfletti bók fyir mig )

Investment ( Fræðandi og góð bók um fjármál og fjárfestingar )


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2006 00:11:36 / solla

Verð nú að setja inn mynd af Klöru sætu

Ohoooo hún er svo sæt :lol:


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 22:38:50 / solla

Skemmtileg mynd af okkur vinkonunum

Þessi mynd var tekin á fegurðarsamkeppninni í fyrra, ekki það að við fallegu dömurnar höfum fengið að vera með og neeeiiiiii.....

Ég og Ingibjörg í Duran Duran partýi dauðanns :haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 21:55:30 / solla

Klara kemur víí......

Já kæru vinkonur hér norðanheiða þá hafa Klara og litlu grýsirnir ákveðið að koma og vera hjá mér (okkur) um páskana.  Sem verður ekkert smá yndislegt.  Við reynum bara að halda okkar plani með leikhúsferðina, ráðum einhverjar 10 dömur til að ráða við allan skarann :haha: Verðum svo endilaga að hittast með krakkana líka sem ætti að vera auðvelt þar sem Þorsteinn Darri á afmæli 12 apríl og ég held bara upp á það þegar Klara kemur sem verður vonandi á skýrdag.  Svo er bara að hittast og borða saman og spila og sonna gleði ;) 

En að öðru máli þá var ég með litla krílið mitt hann Þorstein Darra í enn einni rannsókninni í dag upp á sjúkrahúsi, tekur ekkert smá á þar sem ég þarf að halda barninu á orginu meira og minna í öllum þessum blessuðu blóðprufum. Langar að gráta með litla krúttinu mínu. :cry: 

En enn er voðalega lítið komið út úr neinum af þessum rannsóknum nema að vitað er að hann er með psorieses, ofnæmi og liðargigt.  Þar sem eitt af einkennunum er mikil þreyta og brjálaður pirringur hef ég tekið þá ákvörðun að minnka við hann leikskólann til eitt á daginn hann hefur ekki orku eða þrek í meira og hef þar af leiðandi sagt upp vinnunnu, og ákveðið að vera verkefnastjóri Fjölskyldu og heimilis á fyrst um sinn. ;) Ætla nú að vísu að vera með eitt og annað í bakhöndinni sem ég get unnið við hér heima.  

Sævar er að fara á neskaupstað aftur á morgun og guð veit hvenær hann kemur heim !!   En svona er þetta og maður verður víst bara að sætta sig við það :S 

En þetta er að frétta af mér í bili.....

Sóley bjútýbolla 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 23:06:54 / solla

Frábær speki

KANNSKI

Kannski verðum við að hitta ranga fólkið áður en við hittum rétta fólkið, svo að við kunnum að vera þakklát þegar við hittum loksins þann sem hentar okkur.
Kannski opnast dyr hamingjunnar á einum stað um leið og þær lokast á öðrum, en oft störum við svo lengi á lokuðu dyrnar að við sjáum ekki hinar sem hafa opnast.
Kannski er besti vinurinn sá sem þú getur rólað þér með á veröndinni án þess að segja orð og síðan gengið í burtu og liðið eins og þú hafir átt eitt besta samtal ævi þinnar.
Kannski er satt að við vitum ekki hvað við höfum átt fyrr en við missum það, en það er líka satt að við vitum oft ekki hvers við höfum saknað fyrr en við öðlumst það. Það eitt að gefa einhverjum alla okkar ást tryggir ekki að viðkomandi elski okkur á móti. Ekki búast við ást í skiptum fyrir ást; bíddu þangað til ástin vex í hjörtum annarra og ef það gerist ekki, skaltu þakka fyrir að ástin hafi vaxið og dafnað í þínu hjarta.
Kannski tekur það einungis mínútu að brjóta einhvern niður, klukkutíma að láta sér líka við einhvern og einn dag að verða ástfanginn af einhverjum, en það getur tekið lífstíð að gleyma einhverjum.
Kannski ættir þú að reyna að ná í einhvern sem fær þig til að brosa, vegna þess að eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Ekki fara eftir útliti, það getur blekkt. Ekki fara eftir auðævum, þau geta horfið. Finndu einhvern sem fær hjarta þitt til að brosa.

Þegar þú fæddist varstu grátandi og allir í kringum þig voru brosandi.
Lifðu þannig að þegar þú deyrð verðir þú brosandi og allir í kringum þig grátandi.

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 23:30:50 / solla

Kveðja

Í gær kvaddi Hardi þetta líf sem við þekktum öll frá fyrri tíð.  Mér verður hugsað til baka þegar við sátum öll á Billanum við stelpurnar Hardi og Denni. En mest er mér hugsað til elsku Öldu og barna.  Hversu erfitt þetta er fyrir þau elskurnar, Alda, Hörður, Helena og aðrir aðstendur guð verði með ykkur í þeirrri baráttu sem framundan er og ég votta ykkur mína dýpstu samúð.  Guð verði með ykkur, allt á þetta eftir að taka sinn tíma.

 

 

 

 

 

 

 

Með samúðarkveðju Sóley


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 23:02:07 / solla

Mislukkaðri verður maður ekki....

Í morgun þegar ég vaknaði var þetta dásamlega veður, sól skein í heiði og allt eitthvað svo fallegt.  Ég byrja auðvitað á því að íhuga hvernig ég ætla að eyða deginum, átti ég að fara á skíði með krakkana eða bara fara á þvæling.  Ákvörðunin var tekin ég ætlaði að fara á þvæling fara að versla og njóta veðursins með þessum elskum.  Ég ákvað þar sem veðrið var svona fallegt að fara í pæjuleik ;)  Klæddi mig í nýju disel buxurnar, hælana, málaði mig voða fínt og setti upp sólgeraugun og var bara svona algert megababe (svona eins og ég get orðið).  Svo lýður dagurinn og ég enda á að fara að versla.  Þegar heim er komið skutla ég mér út úr bílnum, tek pokana, sveifla hárinu og laga sólgleraugun og brosi mínu blíðasta.  Nema............... ég var með pínu uppábrot á buxunum þar sem ég er við það að vera dvergur og ekki búin að stytta buxurnar enn.

Ég sveifla mér þarna eftir planinu algjör töffari :D og hvað gerist jú annar hællinn flæktist í uppábrotinu á buxunum og ég marfleyti kerlingar þarna eftir planinu með alla innkaupapokana í höndunum og vissi ekki meir...... nema að ef einhver hefur verið fljótur á fætur þá var það ég í þessu tilfelli,  ég var hel aum alstaðar, gat á nýju fínu buxunum, sólgleraugun rammskökk einhverstaðar á hausnum á mér og mjöðmin í henglum.  Sævar auminginn fékk sjokk kom hlaupandi í því sem ég er að líta í allar áttir að athuga hvort einhver hafi séð til mín, og spyr Sóley almáttugur er í lagi með þig !!! ég öll skökk og bjöguð enn með sólgleraugun ég veit ekki hvar, svaraði já allt í góðu með allt nema sálina og strunsaði svo hölt inn.  Þegar ég fór svo að skoða málið aðeins betur þegar ég kom inn þá flæddi blóð úr örðu hnénu á mér mjöðmin helblá,  og ég bara í henglum........... 

Jamm folks Solla í nærmynd :^) 


» 1 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 02:39:08 / solla

Er komin tími á blogg or...!!!

Það er búið að vera svo brjálað að gera að það hálfa væri miklu meira en nóg.  Tók þátt í prófkjöri Framsóknarflokksins en kannski eins og gefur að skilja þegar maður er nýr í þessu þá tókst mér ekki að ná 5. sætinu enda kannski bara gott mál þessa dagana að vera ekki á fullu í þeirri vinnu líka ;)  Þosteinn Darri litla krúttið mitt er komin með psoriesis, liðargit og mikið ofnæmi þannig að allur tími minn fer í að sinna litla skinninu ásamt hlaupum í vinnuna í einhverja klukkutíma þegar hentar.  Annars er ég búin að segja upp starfinu og ætla að vinna heima við, við ýmislegt sem til fellur, bókhald, eignaskiptasamninga og eitthvað skemmtilegt. Og hver veit nema að ég fari bara í nám aftur í haust læt tímann leiða það í ljós.  En aðalstarfið verður auðvitað verkefnastjóri Fjölskyldu og heimilis :haha:

 

Ég tók mig til um helgina og skellti mér í borgina sem var algjör snilld fór með börnin með mér og var hjá yndislegustu manneskju í heimi henni Klöru minni.  Okkur tókst með einhverjum ótrúlegum hætti að skemmta okkur svo svakalega á laugardagskvöldið að sunnudagurinn var bara dagur dauðanns, en svona er þetta þegar við hittumst :haha:  Svo er bara stefnan að hún komi og verði hjá mér um páskana og ekki verður minna tekið á því þá geri ég ráð fyrir ;)

 

Annars er bara allt fínt að frétta af kerlu Sævar búinn að vera heima í viku en fer nú að fara aftur á Neskaupstað, mjög líklega á mánudaginn en svonna er lífið og ekkert öðruvísi en það.

 

Langar í lokin að setja inn lag og texta sem Klara sæta sendi mér vegna þess að það minnir hana svo afskaplega mikið á mig kerlinguna :lol: 

fyrir þig…. 

Eftir JAMES BLUNT

http://laboheme.over-blog.com/article-1449011.html

"You're Beautiful"

My life is brilliant.

My life is brilliant.
My love is pure.
I saw an angel.
Of that I'm sure.
She smiled at me on the subway.
She was with another man.
But I won't lose no sleep on that,
'Cause I've got a plan.

You're beautiful. You're beautiful.
You're beautiful, it's true.
I saw your face in a crowded place,
And I don't know what to do,
'Cause I'll never be with you.

Yeah, she caught my eye,
As we walked on by.
She could see from my face that I was,
Flying high, [ - video/radio edited version]
Fucking high, [ - CD version]
And I don't think that I'll see her again,
But we shared a moment that will last till the end.

You're beautiful. You're beautiful.
You're beautiful, it's true.
I saw your face in a crowded place,
And I don't know what to do,
'Cause I'll never be with you.

You're beautiful. You're beautiful.
You're beautiful, it's true.
There must be an angel with a smile on her face,
When she thought up that I should be with you.
But it's time to face the truth,
I will never be with you.

 

 

Kveðja Solla Hrísgrjón :haha:

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2006 21:42:40 / solla

Vinátta....

Hér koma nokkrar staðreyndir um vináttuna, þar sem við vinkonurnar erum á þeim nótunum núna 0 

 

 

 

 

Fágætur er góður vinur.

 

 

Sá er vinur er í raun reynist.  

 

 

 

Í þörf skal vinar leita.

 

 

 

Besti vinurinn sem við þekkjum er sá sem þekkir galla okkar og er samt vinur okkar. 

 

 

 

Maður á ekki að stefna að því að eignast eins marga vini og mögulegt er, bara svo marga að maður geti ræktað vináttu við þá.

 

 

 

Sannur vinur talar vel um okkur og ver okkur þegar við erum fjarri. 

 

 

 

Trúr vinur er öruggt athvarf og auðurgur er sá, sem finnur hann.

 

 

 

 

Takk fyrir að vera til stelpur :)

 

Búið að vera frábært að lesa kommentin ykkar við spurningunum og ef maður er ekki í krampakasti úr hlátri............  Das kapital, vængirnir, stelpnapartýin OMG veit ekki hvar ég væri án ykkar ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 23:03:57 / solla

Jæjja…

…..Kæru vinir og vandamenn í borg óttans nú ætla ég að vera með annan fótinn inn á ykkur.  Komið í ljós að þetta blessaða námskeið sem ég er að fara á hjá endurmenntun HÍ verður 3 daga í viku í heilar 4 vikur !! Ekki alveg að nenna þessu þar sem ég kemst aldrei heim samdægurs urr……    

En úr einu í annað þá erum við stuðboltarnir að fara að hittast á laugardaginn, ætlum að byrja seinnipart laugardags á bretti í fjallinu verður eitthvað sögulegt þar sem ég nánst drap mig í þetta eina skipti sem ég hef farið á bretti.  Bretti og skíði eru nefnilega ekki alveg sami hluturinn :$ .  Ætlum svo að enda í pottinum heima hjá Elfu babe á meðan herrarnir okkar elda einhvern góðan mat handa okkur, Stuð hjá okkur ………………….8)

 

Over and out 


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.01.2006 13:42:50 / solla

Mestur kynþokki um fertugt !!!

"Fólk er kynþokkafyllst þegar það á tvö ár eftir í fertugsaldurinn eru niðurstöður nýrrar könnunar. Þegar tvö þúsund Bandaríkjamenn voru spurðir að því á hvaða aldri fólk væri kynþokkafyllst bar talan 38, sigur úr býtum."

Noh... get ekki beðið eftir að ná þessum aldri :lol:


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.01.2006 09:06:26 / solla

Spakmæli dagsins..

Menn lifa ekki vegna þeirrar umhyggju sem þeir bera fyrir sjálfum sér, heldur vegna þeirrar ástar sem aðrir bera til þeirra.

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2006 22:46:03 / solla

Fullkomið brúðkaup...

Á föstudagskvöldið fór ég og sá þessa frábæru sýningu hjá LA.  Þetta er drepfyndinn og rómantískur farsi um brúðkaupsdag sem fer á annan endann.Ég hló svo mikið að ég er enn með harðsperrur í maganum,  mæli með að enginn láti þetta verk fram hjá sér fara :haha:

Svo er nú það að frétta að Sæbbi er kominn á samning og stefnir á nám í rafirkjun.  Því fylgja fórnir því hann verður mikið að vinna út á landi allavega fyrst til að byrja með.  Er að fara á Neskaupstað á morgun og verður í einhverja daga.  En engar áhyggjur kæru vinir hann verður í bænum á laugardaginn svo hittingurinn heldur ;) 

Þangað til næst

                                                      


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5